Í vor efndu Wift og Doris Film á Íslandi til handritasamkeppni meðal kvenna. Doris film verkefnið er aðlögun að sænsku verkefni sem hófst árið 1999 og ól af sér níu stuttmyndir og kennsluefni um kynjahlutföll í kvikmyndum. Doris Film á Íslandi hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði til jafnréttismála sem varð til þess að verkefnið fór af stað hér á landi en verkefnastjóri er Dögg Mósesdóttir. Þátttakan hér heima fór fram úr björtustu vonum en alls bárust 102 sögur í keppnina.
Dómnefnd hefur nú valið úr 11 sögur sem munu halda áfram í þróun en stefnan er að í kringum 5 handrit fari í framleiðsluferli. Myndirnar verða unnar eftir Doris Film sáttamálanum þar sem allar myndirnar eiga að hafa, í það minnsta, eina konu í aðalhlutverki, allar listrænar ákvarðanir og aðalábyrgðarstöður eiga vera í höndum kvenna og öll frumsamin tónlist á að vera samin af konum.
Dómnefndina skipuðu framleiðendurnir Anna María Karlsdóttir, Guðrún Edda Þórhannesdóttir, Hanna Björk Valsdóttir, Hlín Jóhannesdóttir, Hrönn Kristinsdóttir, Rakel Garðarsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Baldvin Z leikstjóri og Óttar M. Norðfjörð handritshöfundur.
Eftirfarandi 11 handrit komust í úrslit:
- „Borgarbarnið Júlía“ eftir Bjargeyju Ólafsdóttur,
- „Andartakið“ eftir Ástu Hafberg,
- „Geymt en ekki gleymt“ eftir Brynju Dögg Friðriksdóttur,
- „Græðlingur“ eftir Elsu Maríu Jakobsdóttur,
- „One of them“ eftir Evu Sigurðardóttur,
- „Qividoq“ eftir Sóleyju Kaldal,
- „Sex á stofu“ eftir Ásdísi Sólrúnu Halldórsdóttur,
- „Type and release“ eftir Söru Sigurbjörns- og Öldudóttur,
- „Uppljómað sálarástand klaufdýra“ eftir Lilju Sigurðardóttur,
- „Þessi besti aldur“ eftir Ísgerðir Elfu Gunnarsdóttur
- „Frosin“ eftir Ýr Þrastardóttur.
Sjá nánar hér: Úrslit Doris Film | wift.