Ásgeir H. Ingólfsson er staddur á kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi og sendir þaðan frá sér ördóma um myndirnar á dagskránni. Ítarlegri umfjöllun um þær verður í Víðsjá Útvarpsins að hátíð lokinni. Annar skammtur væntanlegur ásamt með umfjöllun um París norðursins Hafsteins Gunnars, sem sýnd er í dag þriðjudag.
Sixteen: virkilega mögnuð mynd um fyrrverandi kongóskan barnahermann að reyna að fóta sig í Bretlandi.
Locke: Góð en samt ekki jafn góð og hæpið.
Obsessive Rhytms (Cadences obstinées): Óttalega tilgerðarleg og synd að leikkona á borð við Fanny Ardant skuli skrifa svona klisjukennt kvenhlutverk fyrir Asiu Argento. Samt sogast maður aðeins inní dramað áður en yfir líkur.
Barbarians (Varvari): mynd um serbneskar fótboltabullur. Sem eru afskaplega óspennandi, hlusta á leiðinlega tónlist, eiga leiðinlegar samræður og eru óttalegir durgar. Sjálfsagt raunsæ lýsing – en skilar sér ekki í góðri bíómynd þótt það séu stöku fyndin atriði.
Memories on Stone: Ókei, það er ljótt að alhæfa um þjóðir. En samt, kúrdar virðast allir vera fáránlega góðir í að gera bíómyndir. Stórkostleg upphafssena og yndisleg hrakfallasaga leikstjóra sem reynir að gera bíómynd þótt allt gangi á afturfótunum, hvort sem það er leikkonur sem fá ekki leyfi forráðamanna til að vera með eða hæfileikalausir söngvarar sem eru búnir að kaupa sér aðalhlutverkið.
Bota: Skemmtilega blúsuð albönsk ræma um einhverja afskektutu vegasjoppu Evrópu. Smá dass af Kusturica en öllu meiri raunsæisblær samt.
Norway: Vampíran Zano kemur til Albaníu árið 1984. og lendir í ævintýrum með fláráða flagðinu Lísu og sakleysislega norðmanninum Pétri. Æðislega stýlíserað og skemmtilegt – eiginlega hálfgerð Drive vampírumyndanna á sinn hátt, nema auðvitað miklu betri en Drive.
Starred Up: Feðgar í fangelsi væri líklega titillinn sem Árni Sam myndi velja þessari mynd David Mackenzie (Hallam Foe). Feðgarnir eru vel að merkja báðir snælduvitlausir. Í melódramatískari kantinum af fangelsisræmum að vera en heldur allan tímann, þótt ég sé ennþá að eins að melta það hvert Mackenzie er að fara með þetta allt saman.