Frestur til að sækja um störf vegna Kvikmyndahátíðar í Reykjavík, sem fram fer dagana 12.-21. september, rennur út á morgun 30. apríl.
Auglýst er vegna eftirtaldra starfa:
Framleiðandi Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér að sjá um um framkvæmd, verkstjórnun og yfirumsjón með viðburðum hátíðarinnar. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu og áhuga á markaðsmálum og fjármögnun menningarviðburða.
Kynningar- og markaðsstjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér umsjón með kynningarmálum hátíðarinnar. Viðkomandi þarf að vera vel talandi og skrifandi á íslensku og ensku og æskilegt er að hafa reynslu af blaða- og fréttamennsku.
Gestastjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér umsjón innlendra- og erlendra gesta hátíðarinnar ásamt því að gestastjóri hefur yfirumsjón með móttöku erlendra blaðamanna og tekur þátt í skipulagningu og útfærslu kynningarmessu hátíðarinnar.
Gert er ráð fyrir að framleiðendi hefji störf fljótlega en ráðið verður í hin störfin í júlí eða byrjun ágúst.
Umsóknir sendist á netfangið jobs@reykjavikfilmfest.is.
Sjá nánar hér: Umsóknarfrestur fyrir störf við Kvikmyndahátíð í Reykjavík 30. apríl.