Skarphéðinn Guðmundsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Sjónvarpsins. Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri tilkynnti þetta á fundi í Efstaleiti rétt í þessu.
Skarphéðinn er með BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Skarphéðinn hefur starfað sem dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins frá árinu 2012, var áður dagskrárstjóri Stöðvar 2 frá árinu 2007 og upplýsingafulltrúi 365 miðla frá 2005. Hann starfaði áður á menningardeild Morgunblaðsins, sem blaðamaður og gagnrýnandi.
Uppfært:
Á vef RÚV kemur fram hverjir skipa framkvæmdastjórn RÚV.
- Framkvæmdastjóri rekstrar-, fjármála- og tæknisviðs: Anna Bjarney Sigurðardóttir.
- Framkvæmdastjóri samskipta, þróunar- og mannauðssviðs: Hildur Harðardóttir.
- Skrifstofustjóri: Margrét Magnúsdóttir.
- Fréttastjóri: Rakel Þorbergsdóttir.
- Dagskrárstjóri sjónvarps og íþrótta: Skarphéðinn Guðmundsson.
- Dagskrárstjóri Rásar 1: Þröstur Helgason.
- Dagskrárstjóri Rásar 2: Frank Þórir Hall.
- Vef- og nýmiðlastjóri: Ingólfur Bjarni Sigfússon.
Þessi átta skipa framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins og eru öll ný í sínum störfum, nema Skarphéðinn og Ingólfur Bjarni.
Nýráðinn mannauðsstjóri er Andrea Róbertsdóttir.