Hulda Rós Guðnadóttir og Helga Rakel Rafnsdóttir (Kjötborg) vinna nú að heimildamyndinni Keep Frozen, um löndunarmenn frystitogara.
Þær lýsa verkefninu svona á Facebook síðu myndarinnar:
„Á kaldri vetrarnóttu siglir drekkhlaðinn frystitogari inn í gömlu höfnina í Reykjavík. Í frystilestinni eru 20.000 fiskikassar, hitastigið er -35 C. Hópur manna hefur tvo sólarhringa til að tæma skipið. Á meðan við fylgjumst með þeim framkvæma hið ómögulega heyrum við sögur af karlmennsku og rómantík, gamni og dauðans alvöru.“
Fyrirhugað er að sýna myndina á næsta ári.