Guðmundur Arnar Guðmundsson hefur verið valinn til þátttöku á Cannes Residency þar sem hann mun þróa áfram nýjasta verkefni sitt og fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Hjartastein. Guðmundur Arnar, sem er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar, er einnig leikstjóri og handritshöfundur hinnar margverðlaunuðu stuttmyndar Hvalfjörður.
Hjartasteinn hefur hlotið vilyrði um framleiðslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands upp á 90 milljónir króna. Tökur eru fyrirhugaðar á næsta ári.
Myndin segir frá hinum þrettán ára Þór sem er að uppgötva kynhvötina og yfirstígur óttann við stelpur með aðstoð besta vinar síns, Kristjáns, sem er fjórtán ára. Á meðan er Kristján að uppgötva leyndarmál sem enginn strákur vill eiga í litlu sjávarþorpi.
Sjá nánar hjá Svarthöfða: Guðmundur Arnar fer með Hjartastein á Cannes Residency | Kvikmyndavefurinn Svarthöfði.