Egill Helgason minnist hins nýlátna danska leikstjóra Gabriel Axel (Gestaboð Babettu) og rifjar meðal annars upp kvikmyndina Rauðu skikkjuna (Hagbard og Signe/Den röde kappe) sem gerð var hér á landi á sjöunda áratug síðustu aldar.
Egill segir meðal annars:
Flestir eru sennilega búnir að gleyma því en Gabriel Axel tengist íslenskri kvikmyndagerð á tíma þegar hún var nánast ekki til. Hann leikstýrði kvikmyndinni Rauðu skikkjunni sem var tekin upp á Íslandi og frumsýnd 1967. Þetta var stórmynd, sameiginleg framleiðsla Nordisk film og Sovétmanna. Hinn íslenski framleiðsluaðili myndarinnar var Edda Film, og Íslendingar fóru með nokkur hlutverk, meðal annarra Gísli Alfreðsson, Flosi Ólafsson og Borgar Garðarson.
Aðalhlutverkin léku Rússinn Oleg Vidov, danska ungstirnið Gitte Hænning (sú sem söng Ich will einen Cowboy als Mann) og stórleikarinn sænski Gunnar Björnstrand, sem lék í mörgum frægustu myndum Ingmars Bergman.
Hér má sjá nakta karlmenn í atriði úr Rauðu skikkjunni. Meðal þeirra sem bregður fyrir eru áðurnefndir Gísli og Borgar.
Sjá nánar hér: Naktir íslenskir karlar í kvikmynd Gabriels Axel « Silfur Egils.