![Jóhann Ævar Grímsson handritshöfnur verður þróunarstjóri leikins efnis hjá Sagafilm.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2013/12/jóhann-ævar-grímsson.jpg?resize=300%2C210&ssl=1)
Jóhann Ævar Grímsson hefur verið ráðinn þróunarstjóri leikins efnis hjá Sagafilm.
Í tilkynningu frá Sagafilm segir að eftirspurn eftir leiknu sjónvarpsefni hafi margfaldast í heiminum á undanförnum misserum og ætli Sagafilm sér að sækja í auknum mæli á nýja markaði fyrir leikið efni. Ráðning Jóhanns Ævars er til þess gerð að styrkja Sagafilm í þeirri sókn sem fyrirtækið hefur lagt úti með opnun skrifstofu í Stokkhólmi.
Jóhann Ævar hefur tekið þátt í að skrifa nokkra af vinsælustu sjónvarpsþáttum síðari ára auk kvikmyndanna Astrópíu og Bjarnfreðarsonar. Meðal sjónvarpsþátta sem Jóhann Ævar hefur skrifað, ásamt öðrum, eru Stelpurnar, vaktaseríurnar þrjár, Pressa 2 og 3 og Heimsendir.