Kvikmyndahátíðinni í Tokyo var að ljúka og var Benedikt Erlingsson valinn besti leikstjórinn fyrir mynd sína Hross í oss. Þetta er í annað skiptið á skömum tíma sem myndin vinnur stór verðlaun, en skemmst er að minnast verðlaunanna í San Sebastian um síðastliðin mánaðamót þar sem Benedikt var einnig valinn besti leikstjórinn.
Kvikmynd Lukas Moodysson, Vi är bäst, hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar sem besta myndin. Almennar sýningar hefjast á henni í Bíó Paradís innan skamms.
Myndin, Benedikt og framleiðandinn Friðrik Þór fara nú til Lübeck í Þýskalandi ásamt fríðu föruneyti annarra íslenskra kvikmyndagerðarmanna og kvikmynda, líkt og Klapptré greindi frá í gær.
Hér má sjá umfjöllun um myndina og spjall við leikstjórann og framleiðandann í Tokyo. Hátíðin er ein sú stærsta í Asíu og tilheyrir svokölluðum „A“ hátíðum skv. skilgreiningu FIAPF (Alþjóðasambands kvikmyndaframleiðenda).