Sunnudagsmorgunn, spjallþáttur Gísla Marteins Baldurssonar, fer í loftið þann 27. október á RÚV. Viðskiptablaðið hefur eftir Gísla að Illugi Gunnarsson og Katrín Jakobsdóttir muni ræða menntamál, fjárlög og ríkisstjórn, auk þess sem Ólafur Stephensen, Kolbrún Bergþórsdóttir og Dóri DNA ræði fréttir vikunnar. „Hugmyndin er að þetta verði svona uppbyggilegt og jákvætt sunnudagsmorgunspjall,“ segir Gísli Marteinn.
Hinn reyndi upptökustjóri Jón Egill Bergþórsson stýrir framleiðslunni og annar reynslubolti, Úlfur Grönvold, gerir leikmyndina sem sjá má hér að neðan.