Kvikmyndaverin Sony og Universal eiga nú í harðri baráttu um hvort þeirra verður fyrra til með kvikmynd um Everest, hæsta fjall heims. Báðar kvikmyndirnar hafa orðið fyrir nokkrum skakkaföllum, aðalleikarar hafa helst úr lestinni og fjármögnun í uppnámi.
Þetta kemur fram á vef Deadline. Þar segir enn fremur að kvikmyndaverin bæði ætli að láta myndirnar ganga upp, þrátt fyrir nokkur ljón í veginum og Universal – með Baltasar í broddi fylkingar – hafi forystuna sem stendur.
RÚV greinir frá: Baltasar í miðju kapphlaupi um Everest | RÚV.