Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í Kastljósi gærkvöldsins að ekki stæði til að skera meira niður hjá Kvikmyndasjóði eða RÚV en hjá öðrum. Hann kannaðist ekki við þær hugmyndir sem komið hafa fram í fjölmiðlum að undanförnu að til stæði að skera Kvikmyndasjóð niður um 40%. Sjá nánar um þetta á Eyjunni: Sigmundur Davíð: Ekki skorið meira niður hjá RÚV og Kvikmyndasjóði en annars staðar « Eyjan.