Greining | Vinsælustu bíómyndirnar 2017

Úr Ég man þig.

Í fyrsta skipti síðan mælingar hófust eru tvær íslenskar kvikmyndir stærstu myndir ársins. Þetta eru kvikmyndirnar Ég man þig sem þénaði tæpar 76,6 milljónir kr. (47.368 gestir) og Undir trénu sem þénaði 67,7 milljónir kr. (42.427 gestir).

Nýjasta Star Wars myndin, The Last Jedi, var svo í þriðja sæti með 67,5 milljónir kr. í tekjur en sú kvikmynd er jafnframt sú eina þar sem aðsókn var yfir 50 þúsund manns á árinu en heildaraðsókn ársins að henni var 50.645 enda þótt kvikmyndin hafi einungis verið í sýningu frá 12. desember.

Samdráttur í aðsókn

Heildartekjur allra kvikmynda í íslenskum kvikmyndahúsum á árinu námu 1.688.453.577 kr. sem er á pari við tekjur kvikmyndahúsa árið 2016 sem námu þá 1.689.720.455 kr. Aðsókn dróst hins vegar saman um 3,4%. Var 1.371.820 árið 2017 en var 1.420.435 árið 2016. Hver Íslendingur fór því rúmlega fjórum sinnum í kvikmyndahús á árinu.

Þrjár íslenskar myndir á topp 20, markaðshlutdeild eykst verulega

Á síðustu fjórum árum hafa íslenskar kvikmyndir trónað þrisvar á toppnum yfir tekjuhæstu kvikmyndir ársins, sem hlýtur að teljast einkar jákvætt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað. Að þessu sinni voru þrjár íslenskar myndir á lista yfir tuttugu vinsælustu kvikmyndir ársins en kvikmyndin Hjartasteinn situr í 11. sæti með tæpar 34,5 milljónir kr. í tekjur en yfir 22.000 manns sáu kvikmyndina í bíóhúsum. Hlutfall íslenskra kvikmynda af heildartekjum var 11,22% árið 2017 en var 6,6% á árinu 2016 svo þeirra íslensku var umtalsvert fyrirferðarmeira í kvikmyndahúsum en árið á undan. Samtals voru 17 íslenskar kvikmyndir/heimildarmyndir sýndar í kvikmyndahúsum á árinu en voru 15 árið á undan. Vinsælasta íslenska heimildarmyndin á árinu var kvikmyndin um Reyni sterka sem rúmlega 2.200 manns sáu í kvikmyndahúsi og halaði hún inn rúmar 3,3 milljónir kr.

Bandarískar myndir með um 85% af markaðinum

Bandarískar kvikmyndir áttu 85% af markaðnum sé horft til tekna en 87% sé horft til aðsóknar. Þetta er ívið minna en árið á undan þegar bandarískar kvikmyndir voru með í kringum 90% af markaðinum, sem var óvenjuhátt hlutfall. Allar 20 stærstu myndirnar, að þeim þremur íslensku undanskildum, komu úr smiðju bandarísku kvikmyndastúdíóanna. Síðasta ár var einkar gott fyrir Disney á Íslandi því þaðan komu myndirnar sem röðuðu sér í sæti þrjú til sex. Aðrar erlendar kvikmyndir en bandarískar voru því með 3,4% af markaðnum í tekjum á síðasta ári. Vinsælasta kvikmynd ársins vestur í Bandaríkjunum í tekjum talið var Star Wars: The Last Jedi.

Alls voru 172 kvikmyndir teknar til sýninga í kvikmyndahúsum á síðsta ári en voru 179 tvö ár þar á undan (2015 og 2016).

Lista yfir tuttugu vinsælustu kvikmyndirnar á árinu 2017 má sjá hér að neðan. Þess má geta að vinsældum mynda er ávallt raðað eftir tekjum en ekki aðsókn. Þetta er gert svo að hlutfall boðsmiða eða afsláttarmiða í umferð hafi ekki áhrif á vinsældir kvikmynda.

(Byggt á fréttatilkynningu frá FRÍSK)

20 tekjuhæstu kvikmyndirnar 2017

RöðNafnDreifingTekjurAðsókn
1Ég man þigSena76,591,704 kr.47,368
2Undir trénu*Sena67,736,250 kr.42,427
3Star Wars: The Last Jedi*Samfilm67,546,351 kr.50,645
4Thor: Ragnarok*Samfilm49,740,365 kr.38,039
5Guardians of the Galaxy - Vol. 2Samfilm48,257,615 kr.36,961
6Beauty and the Beast (2017)Samfilm47,232,358 kr.38,552
7Despicable Me 3 (Aulinn ég 3)Myndform46,971,174 kr.44,009
8Fast and Furious 8 (The Fate of the furious)Myndform36,608,463 kr.29,256
9DunkirkSamfilm35,975,196 kr.28,074
10Spider-man: Homecoming (2017)Sena35,375,104 kr.27,250
11HjartasteinnSena34,440,662 kr.22,684
12Wonder WomanSamfilm33,737,593 kr.25,799
13Pirates of the Caribbean – Salazar’s RevengeSamfilm32,952,662 kr.25,495
14La La LandSamfilm32,695,466 kr.25,913
15IT (2017)Samfilm32,642,023 kr.24,766
16Kingsman: The Golden Circle (2017)Sena29,273,597 kr.22,942
17LoganSena29,088,190 kr.22,394
18Justice League+Samfilm28,629,380 kr.21,393
19The Lego Batman MovieSamfilm28,547,463 kr.27,443
20BaywatchSamfilm28,054,448 kr.22,805
 *Kvikmynd enn í sýningu svo ekki er um heildartölur að ræða. | HEIMILD: FRÍSK

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR