Sölufyrirtækið TrustNordisk hefur tilkynnt um sölur á Ég man þig Óskars Þórs Axelssonar víða um heim í kjölfar Cannes hátíðarinnar. Myndin fer meðal annars til Norður-Ameríku (IFC Films), Frakklands (Swift), Japans (Gaga), Rómönsku Ameríku (California Filmes) og Víetnam (Green Media).
Sölufyrirtækið TrustNordisk hefur gengið frá sölu á dreifingarrétti í Bretlandi á kvikmynd Óskars Þórs Axelssonar, Ég man þig, til Studiocanal. Einnig hefur myndin verið seld til þýskumælandi svæða, Ungverjalands og Tyrklands.
Danska sölufyrirtækið TrustNordisk mun sjá um sölu kvikmyndarinnar Ég man þig eftir Óskar Þór Axelsson á alþjóðavísu. Myndin er væntanleg á næsta ári. Zik Zak kvikmyndir og Sigurjón Sighvatsson framleiða.