"Gefur þeim sem eftir sitja rödd," segir Jóna Gréta Hilmarsdóttir meðal annars í Morgunblaðinu um heimildamyndina Út úr myrkrinu eftir Helga Felixson og Titti Johnson.
Hjördís Stefánsdóttir skrifar í Morgunblaðið um heimildamynd Helga Felixsonar, Njósnir lygar og fjölskyldubönd, en myndin er nú í sýningum í Bíó Paradís. "Myndin er í senn mjög áhugaverð og stórmerkileg söguleg heimild sem sýnir hvernig átök styrjalda stórvelda geta af sér meinvörp sem eitra út frá sér yfir á afskekkt annes óháðra smáríkja og öfugt, hvernig illvígar fjölskylduerjur geta óvænt ratað inná fjarlægari vígstöðvar."
Heimstyrjöldin síðari, fjölskyldustríð og handtökur, leyndarmál, þöggun, sögusagnir og rógburður eru viðfangsefni nýrrar heimildamyndar Helga Felixsonar sem nefnist Njósnir, lygar og fjölskyldubönd.
Nýjar myndir frá Kára Schram, Ara Alexander, Helga Felixsyni, Jóhanni Sigfússyni, Yrsu Roca Fannberg og mörgum fleirum á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, sem fram fer á Patreksfirði um hvítasunnuna, 6.-9. júní.
Íslenskri kvikmyndagerð verður gert hátt undir höfði á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg. Hátíðin, sem nú er haldin í 37. skipti, hófst síðastliðinn föstudag og lýkur þann 3. febrúar. Alls verða 13 íslenskar kvikmyndir sýndar á hátíðinni.