Kvikmyndin The Wind Blew On eftir Katrínu Ólafsdóttur, sem nú er í vinnslu, hlaut Eurimages Lab Project verðlaunin sem veitt voru á kvikmyndahátíðinni á Haugasundi á dögunum.
Fúsi Dags Kára var valin besta erlenda myndin á norsku Amanda verðlaununum sem veitt voru í Haugasundi í gær. Louder than Bombs eftir Joachim Trier var valin mynd ársins og hlaut alls fern verðlaun.
Níu íslensk kvikmyndaverkefni á mismunandi stigum framleiðsluferlis verða hluti af alþjóðlegu norsku kvikmyndahátíðinni í Haugasundi, sem fer fram 20.-26. ágúst í Noregi. Verkefnin sem um ræðir eru Tryggðarpantur, War is Over,The Wind Blew On, Vetrarbræður, East by Eleven, The Damned, Martröð, Pale Star og The Wall.