[Stikla] Þáttaröðin BOLTAMÖMMUR í Sjónvarpi Símans

Gamanþáttaröðin Boltamömmur hefur hafið göngu sína í Sjónvarpi Símans Premium. Þættirnir segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans þar sem dramatíkin, keppnisskapið og tilfinningarnar eru áberandi á hliðarlínunni.

Leikstjórn er í höndum Hannesar Þórs Halldórssonar og Hafsteins Gunnars Sigurðssonar. Handritið skrifa Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Sóli Hólm, Hafsteinn Gunnar, Lilja Nótt og Hannes Þór.

Með helstu hlutverk fara Kristín Þóra Haraldsdóttir, Lilja Nótt, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Anna Svava Knútsdóttir, Iðunn Ösp Hlynsdóttir, Ólafur Egilsson, Mikael Kaaber og Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR