Steinn Ármann, örstutt minningabrot

Steinn Ármann Magnússon leikari lést á heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 61 árs að aldri. Hann var fæddur 28. október 1964. Steinn lætur eftir sig eiginkonu og tvo syni.

Við Steinn vorum skólabræður í Flensborg og tilheyrðum sama vinahópi allt frá ofanverðum áttunda áratuginum. Margt var brallað. Við gerðum kvikmyndir saman allt frá fyrstu kynnum 1979 og hann og Davíð Þór (Jónsson) og fleiri gerðu einnig kvikmyndir. Þeir voru einnig í leiklist og músik ásamt mörgum öðrum úr hópnum. Þetta var afar skapandi grúppa, full ástríðu og stöðugt í leit að nýjum ævintýrum. Til í flest, ef ekki allt.

Steinn var stórkostlegur í hlutverki grimmdarlegs læknis í Vojtsek eftir Georg Büchner, sem Leiklistarklúbbur Flensborgar setti upp 1981 í leikstjórn Ingu Bjarnason. Þetta var svona „stjarna er fædd“ móment hjá honum og allir vissu.

Að hann og Davíð Þór yrðu nokkru síðar landsþekktir menn – og í raun þjóðareign – fyrir performans var einhvernveginn bæði sjálfsagt og eðlilegt.

Steinn var eitt viðfangsefna í fyrsta verkefninu sem ég vann fyrir RÚV, heimildamyndinni Ungir Íslendingar (1987). Myndin fjallaði um hóp af ungu fólki sem var að hefja fullorðinsárin og væntingar þess til framtíðarinnar. Steinn vakti mikla athygli. Áratug síðar gerði ég framhaldsmynd um sama fólk, Ungir Íslendingar: tíu árum síðar, innblásinn af -Up heimildaseríu Michael Apted sem ég hafði séð í kvikmyndanámi í Bretlandi í millitíðinni. Þá var Steinn orðinn þjóðkunnur leikari og Radíusbróðir. Hann kom einnig fram í ýmsum öðrum verkum sem ég gerði á þessum tíma, þar á meðal leiknum myndum og sjónvarpsauglýsingum.

Ljósmyndina hér að ofan tók Björgvin Pálsson við tökur á kvikmyndinni Hinir ómótstæðilegu, sem við Hafnfirðingarnir gerðum fyrir RÚV 1988. Þar létu fjöllistamennirnir í hljómsveitinni Kátum piltum ljós sitt skína. Steinn er fremstur á myndinni. Aðrir í fremri röð eru Marteinn Þórsson, Jakob Bjarnar Grétarsson og Davíð Þór Jónsson. Aftari röð: Þóra Kristinsdóttir sminka, ég, Örn Almarsson, Hallur Helgason, Vilhjálmur Þór Guðmundsson kvikmyndatökumaður, Atli Geir Grétarsson, Agnar Einarsson hljóðmeistari heitinn og Hjörtur Howser heitinn. Fjarverandi er enn einn úr hópnum, Úlfur Grönvold, sem þarna sá um leikmuni og bar verkið á herðum sér.

Fjölskyldu og vinum Steins sendi ég innilegar samúðarkveðjur.

Sjá umfjöllun RÚV um Stein hér.

Hina ómótstæðilegu má skoða hér að neðan.

Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson
Ásgrímur Sverrisson er kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri Klapptrés.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR