Í tilkynningu frá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni segir:
Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) frá árinu 1999. Tilnefningar til Edduverðlauna eru kosnar af hópi valnefnda skipuðum fagaðilum í greininni. Verðlaunahafar eru svo kosnir af öllum meðlimum ÍKSA, en nýverið fjölgaði akademían fagdeildum sínum og opnaði fyrir inngöngu mun fleira fagfólks sem vinnur að störfum tengdum kvikmynda- og sjónvarpsgerð.
35 verðlaun ásamt heiðursverðlaunum ÍKSA og uppgötvun ársins
Á Eddunni 2026 verða veitt 35 verðlaun til kvikmynda- og sjónvarpsverka sem frumsýnd voru á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2025. Þá verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt, ásamt því að uppgötvun ársins hlýtur viðurkenningu, en þau verðlaun fær einstaklingur sem ekki hefur hlotið tilnefningu áður í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu.
51 verk og 256 innsendingar til fagverðlauna
Alls bárust 51 verk og 256 innsendingar til fagverðlauna, en í ár var einnig bætt við 15 nýjum flokkum fyrir leikið sjónvarpsefni og fagverðlaun þeim tengdum. Innsendar voru þrettán heimildamyndir, sjö heimildastuttmyndir, ellefu stuttmyndir, sex kvikmyndir í fullri lengd, tíu leiknar sjónvarpsþáttaseríur, og sjö erlendar kvikmyndir.
Valnefndir
Fjörtíu og fjórir einstaklingar sátu í níu valnefndum fyrir hina 35 verðlaunaflokka. Meðlimir ÍKSA munu svo kjósa um tilnefningarnar og verður Edduvarpið opið meðlimum frá 14. apríl til 12. maí en kosningin sjálf stendur yfir frá 1. – 12. maí. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.
Tilnefningar eru sem hér segir:
BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS
Merki, framleiðandi NRDR
Tólf, framleiðendur Dýnamík Stúdíó / Guðjón Ragnarsson
Vonardagur, framleiðendur EinmittEinmitt / Listaháskóli Íslands / Signý Rós
ERLEND KVIKMYND ÁRSINS
Heldin (Late shift), Sena
It Was Just An Accident, Bíó Paradís
One Battle After Another, Sambíóin
Sentimental Value, Sena
The Secret Agent, Bíó Paradís
HEIMILDAMYND ÁRSINS
Jörðin undir fótum okkar, framleiðendur Akkeri Films / Hanna Björk Valsdóttir
Paradís Amatörsins, framleiðendur Stefnuljós / Tinna Ottesen
Strengur, framleiðendur Sagafilm / Gaukur Úlfarsson / Ragnar Agnarsson
HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS
Musteri minninga, framleiðendur Sensor / Kári Úlfsson / Erlendur Sveinsson
Ósigraður, framleiðandi Jóna Gréta Hilmarsdóttir
Póstkort, framleiðendur Silfurskjár / Heather Millard / Freyja Kristinsdóttir
KVIKMYND ÁRSINS
Ástin sem eftir er, framleiðendur Still Vivid / Anton Máni Svansson / Katrin Pors
Eldarnir, framleiðendur Netop Films / Grímar Jónsson
The Damned, framleiðendur Join Motion Pictures / Emilie Jouffroy / Kamilla Kristiane Hodøl / Guðmundur Arnar Guðmundsson
STUTTMYND ÁRSINS
Merki framleiðandi NRDR
Tólf framleiðendur Dýnamík Stúdíó / Guðjón Ragnarsson
Vonardagur framleiðendur EinmittEinmitt / Listaháskóli Íslands / Signý Rós
LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS
Felix & Klara, framleiðendur Mystery Ísland / Davíð Óskar Ólafsson
King and Conqueror, framleiðendur Rvk Studios / Rabbit Track Pictures / The Development Partnership / Shepherd Content
Vigdís framleiðendur Vesturport / Rakel Garðarsdóttir / Ágústa M. Ólafsdóttir / Ásta S. Einarsdóttir
BRELLUR ÁRSINS – KVIKMYND
Peter Hjorth, Anders Nyman og Haukur Karlsson fyrir Ástina sem eftir er
Szymon Kania fyrir Eldana
BÚNINGAR ÁRSINS – KVIKMYND
Helen Beaumont fyrir The Damned
Margrét Einarsdóttir fyrir Eldana
Rebekka Jónsdóttir fyrir Fjallið
GERVI ÁRSINS – KVIKMYND
Ásta Hafþórsdóttir og Sophie King fyrir The Damned
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Hemmet
Ísak Freyr Helgason fyrir Fjallið
HANDRIT ÁRSINS – KVIKMYND
Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er
Jamie Hannigan fyrir The Damned
Ugla Hauksdóttir og Marcus Englmair fyrir Eldana
HLJÓÐ ÁRSINS – KVIKMYND
Björn Viktorsson fyrir Jörðina undir fótum okkar
Gunnar Árnason fyrir Fjallið
Michał Fojcik fyrir Eldana
KLIPPING ÁRSINS – KVIKMYND
Daníel Bjarnason fyrir Voru allir hér? Laugar í 100 ár
Julius Krebs Damsbo fyrir Ástina sem eftir er
Kristján Loðmfjörð fyrir Eldana
KVIKMYNDATAKA ÁRSINS – KVIKMYND
Eli Arenson fyrir The Damned
Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er
Ollie Downey fyrir Eldana
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – KVIKMYND
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Fjallið
Joe Cole fyrir The Damned
Sverrir Guðnason fyrir Ástina sem eftir er
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – KVIKMYND
Anders Mossling fyrir Ástina sem eftir er
Ingvar E. Sigurðsson fyrir Ástina sem eftir er
Jóhann G. Jóhannsson fyrir Eldana
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – KVIKMYND
Odessa Young fyrir The Damned
Saga Garðarsdóttir fyrir Ástina sem eftir er
Vigdís Hrefna Pálsdóttir fyrir Eldana
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – KVIKMYND
Ída Mekkín Hlynsdóttir fyrir Ástina sem eftir er
María Heba Þorkelsdóttir fyrir Eldana
LEIKMYND ÁRSINS – KVIKMYND
Frosti Friðriksson fyrir The Damned
Heimir Sverrisson fyrir Eldana
Frosti Friðriksson fyrir Ástina sem eftir er
LEIKSTJÓRI ÁRSINS – KVIKMYND
Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er
Yrsa Roca Fannberg fyrir Jörðina undir fótum okkar
Þórður Pálsson fyrir The Damned
TÓNLIST ÁRSINS – KVIKMYND
Harry Hunt fyrir Ástina sem eftir er
Helgi Svavar Helgason fyrir Fjallið
Herdís Stefánsdóttir fyrir Eldana
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – SJÓNVARP
James Norton fyrir King and Conqueror
Jón Gnarr fyrir Felix & Klöru
Nikolaj Coster-Waldau fyrir King and Conqueror
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – SJÓNVARP
Eddie Marsan fyrir King and Conqueror
Ivo Canelas fyrir Heimaey
Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Brján
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI – SJÓNVARP
Catarina Rebelo fyrir Heimaey
Elín Hall fyrir Vigdísi
Emily Beecham fyrir King and Conqueror
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI – SJÓNVARP
Anna Svava Knútsdóttir fyrir Heimaey
Juliet Stevenson fyrir King and Conqueror
Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Reykjavík Fusion
BRELLUR ÁRSINS – SJÓNVARP
Haukur Karlsson fyrir Reykjavík Fusion
Pétur Karlsson fyrir Felix & Klöru
BÚNINGAR ÁRSINS – SJÓNVARP
Helga I Stefánsdóttir fyrir Vigdísi
Helga Rós V Hannam fyrir Felix & Klöru
Margrét Einarsdóttir fyrir King and Conqueror
GERVI ÁRSINS – SJÓNVARP
Ásta Hafþórsdóttir, Thomas Foldberg og Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Felix & Klöru
Josephine Hoy fyrir Vigdísi
Ásta Hafþórsdóttir fyrir King and Conqueror
HANDRIT ÁRSINS – SJÓNVARP
Ágústa M Ólafsdóttir og Björg Magnúsdóttir fyrir Vigdísi
Ragnar Bragason og Jón Gnarr fyrir Felix & Klöru
Óttar Martin Norðfjörð, Snorri Þórisson og Björg Magnúsdóttir fyrir Reykjavík 112
HLJÓÐ ÁRSINS – SJÓNVARP
Björn Viktorsson fyrir Felix & Klöru
Gunnar Árnason fyrir Vigdísi
Kjartan Kjartansson og Huldar Freyr Arnarson fyrir King and Conqueror
KLIPPING ÁRSINS – SJÓNVARP
Logi Ingimarsson og Gunnar B Guðbjörnsson fyrir Reykjavík 112
Úlfur Teitur Traustason fyrir Reykjavík Fusion
Valdís Óskarsdóttir fyrir Felix & Klöru
KVIKMYNDATAKA ÁRSINS – SJÓNVARP
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir King and Conqueror
Eli Arenson fyrir Vigdísi
Óttar Guðnason fyrir Reykjavík Fusion
LEIKMYND ÁRSINS – SJÓNVARP
Guðni Rúnar Gunnarsson fyrir Reykjavík Fusion
Heimir Sverrisson fyrir Vigdísi
Hulda Helgadóttir fyrir Felix & Klöru
LEIKSTJÓRI ÁRSINS – SJÓNVARP
Baltasar Kormákur, Balint Szentgyorgyi, Nikolaj Coster-Waldau og Erik Leijonborg fyrir King and Conqueror
Ragnar Bragason fyrir Felix & Klöru
Tinna Hrafnsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fyrir Vigdísi
TÓNLIST ÁRSINS – SJÓNVARP
Eðvarð Egilsson fyrir Reykjavík 112
Mugison fyrir Felix & Klöru
Veigar Margeirsson fyrir Reykjavík Fusion













