Edduverðlaunin voru veitt í gærkvöldi í 36 flokkum. Ástin sem eftir er hlaut sjö verðlaun og er kvikmynd ársins. Þættirnir Vigdís eru leikið sjónvarpsefni ársins og hlutu sex verðlaun og kvikmyndin Eldarnir hlaut einnig sex verðlaun. Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar var valin heimildamynd ársins.
Tilnefningar til Eddunnar, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna 2026, hafa verið gerðar opinberar. Ástin sem eftir er eftir Hlyn Pálmason hlýtur flestar tilnefnignar eða 13 talsins. Þáttaraðirnar Felix & Klara og King & Conqueror fá flestar tilnefningar í flokki sjónvarpsverka, alls 11 hvor. Edduverðlaunin verða afhent í lok maí.
Stjórn ÍKSA hefur ákveðið að gera breytingar á Edduverðlaununum og veita einnig öll fagverðlaun fyrir leikið sjónvarpsefni. Þetta er gert í samráði við Sjónvarpsverðlaunin.
Opnað hefur verið fyrir innsendingar verka til Eddunnar 2026. Stjórn ÍKSA hefur ákveðið að bæta við fimm nýjum verðlaunaflokkum, besta leikna sjónvarpsefninu og leikkonu og leikara í aðal- og aukahlutverkum í sjónvarpi.