Katla er fyrsti handritshöfundurinn frá Norðurlöndunum til að hljóta þennan eftirsótta styrk frá því hann var fyrst veittur árið 1986. Hún útskrifaðist frá Columbia-háskóla í New York haustið 2024 með MFA-gráðu og hefur hlotið fjölda viðurkenninga, þar á meðal frá Alfred P. Sloan-sjóðnum. Á síðasta ári var hún einnig valin í Sundance Screenwriters Lab, eina virtustu handritasmiðju heims.
Í tilkynningu Akademíunnar segir að styrkþegarnir séu „óvenju sterkur, fjölbreyttur og alþjóðlegur hópur nýrra höfunda sem endurspegli framtíð frásagnarlistar“ og að Akademían haldi áfram að styðja við upprennandi hæfileikafólk hvaðanæva úr heiminum. Handhafar styrksins fá beina handleiðslu og aðgang að tengslaneti Akademíunnar. Þeir taka þátt í viðburðum með Óskarsverðlaunahöfum, vinnustofum og kynningarfundum og fá fjölmiðlaþjálfun. Þá hljóta þeir áframhaldandi stuðning í gegnum Gold Alumni Network Program, sem er ætlað að efla starfsþróun og þjálfun þátttakenda.
Handrit Kötlu að kvikmynd í fullri lengd ber vinnutitilinn Og jörðin klofnaði alelda (enskur titill Eruption). Sagan gerist á Íslandi snemma á áttunda áratugnum og fjallar um spennu og hræringar í hjónabandi jarðfræðinga þegar metnaðarfullur starfsnemi frá Bandaríkjunum kemur inn í líf þeirra.
Anton Máni Svansson mun framleiða kvikmyndina fyrir hönd framleiðslufyrirtækisins Still Vivid. Anton hefur áður framleitt meðal annars kvikmyndirnar Ástin sem eftir er, Volaða land, Berdreymi, Hvítur, hvítur dagur og Hjartasteinn.













