Myndin hefur átt góðu gengi að fagna á hátíðum frá því hún var frumsýnd á RIFF – alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2025. Hún var síðar heimsfrumsýnd í keppnisflokki á kvikmyndahátíðinni í Varsjá og hefur nú verið valin til sýninga á alls 15 alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.
Anorgasmia er önnur kvikmynd Jóns Gústafssonar í fullri lengd og fara Mathilde Warnier og Edward Hayter með aðalhlutverkin. Tónlist myndarinnar er samin af Michael Brook.
Myndin segir frá Sam og Naomi sem búast við að sjá hvort annað aldrei aftur eftir misheppnaða tilraun til skyndikynna í farangursgeymslu á hosteli í Reykjavík. En þegar eldgos verður til þess að allt flug er fellt niður sitja þau föst saman á Íslandi. Þau leggja af stað á stolnum bíl til að ná fyrstu myndunum af eldgosinu. Ferðalagið inn á hálendið afhjúpar smám saman veikleika þeirra, ótta við skuldbindingu, grafin leyndarmál og spennuna sem er fólgin í því að ná tengslum við aðra manneskju í veruleika þar sem ekki er hægt að „svæpa“ til vinstri.













