Forsvarsmenn RIFF gera athugasemdir við fréttaflutning af hátíðinni

Hrönn Marínósdóttir, eigandi og hátíðarstjórnandi RIFF, og Þórir Ólafsson, stjórnarformaður, hafa svarað gagnrýni sem fram kom í fréttaþættinum Þetta helst á RÚV. Þau segja að þær upplýsingar sem komi fram í þættinum gefi „ranga og/eða villandi mynd af starfsemi RIFF.“

Gagnrýni á RIFF heldur áfram

Á vef RÚV segir:

Í yfirlýsingunni er því hafnað að starfsmenn RIFF hafi verið á kjörum undir lágmarkslaunum. Vinnumálastofnun hafi ávallt farið yfir ráðningarsamninga og kjör áður en samningar um ráðningarstyrki voru samþykktir og engar athugasemdir hafi verið gerðar af hálfu stofnunarinnar. Farið hafi verið eftir gildandi kjarasamningum.

Þá benda þau á að í þá fimm mánuði sem Þorbjörg Jóhannsdóttir hafi starfað sem starfsmannastjóri hafi hún aldrei rætt þau atriði sem hún gagnrýnir í þættinum. Þorbjörg hafi viljað halda áfram sem starfsmannastjóri, en vegna fjárskorts hafi ekki verið hægt að verða við þeirri beiðni.

Forsvarsmenn hafna því að RIFF hafi staðið óeðlilega að fjármálum sínum. KPMG hafi gert úttekt á starfsemi og fjármálum RIFF í fyrrahaust. Niðurstöðurnar sýni ekki fram á neitt misjafnt hvað varðar fjármál, misnotkun styrkja eða óeðlilega meðferð fjármuna.

Þá telja þau ekki athugunarvert að ganga „harkalega eftir afsláttum,“ líkt og Þorbjörg hafi sagt í þættinum. RIFF hafi úr takmörkuðu fé að spila og reyni að nýta það sem best, og leitist því við að gera góða samninga og fá afslætti. Birgjar væru sáttir við það.

„Gott væri ef þetta gilti almennt við meðferð opinbers fjárs og ekki væri verið að gera það tortryggilegt í útvarpi allra landsmanna,“ segir í yfirlýsingu.

HEIMILDRÚV
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR