Myndin var frumsýnd á alþjóðlegu heimildamyndahátíðinni CPH:Dox í vor og og hefur þegar verið valin til sýninga á Gimli International Film Festival, Dok.fest Münich, DMZ International Documentary Film Festival og Nordisk Panorama.
Yrsa verður viðstödd frumsýninguna og mun taka þátt í samræðum að sýningu lokinni.

Jörðin undir fótum okkar segir af sólsetri lífsins á hjúkrunarheimili í Reykjavík, þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum. Leikstjórinn Yrsa hefur sjálf starfað á hjúkrunarheimilinu Grund til margra ára og brennur fyrir málefnum eldri borgara. Í gegnum árin hefur hún myndað náin tengsl við heimilismenn sem jafnframt eru viðfangsefni myndarinnar.
Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri films er aðalframleiðandi myndarinnar. Um hljóðmyndina sér Björn Viktorsson. Myndin verður ein af átta keppnismyndum í flokknum Vitranir. Í kjölfar RIFF fer hún í sýningar í Bíó Paradís.













