HeimEfnisorðJörðin undir fótum okkar

Jörðin undir fótum okkar

JÖRÐIN UNDIR FÓTUM OKKAR framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2027

Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar, verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2027. Myndin var valin af dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, en í henni í sátu fulltrúar helstu fagfélaga íslenska kvikmyndaiðnaðarins, auk fulltrúa kvikmyndahúsa, kvikmyndagagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Þessar íslensku heimildamyndir eru á dagskrá RÚV um páskana

Fjórar nýjar og nýlegar heimildamyndir verða á dagskrá RÚV um páskana, Jörðin undir fótum okkar, Ó góða gamla Grindavík, Nýdönsk í raunheimum og 14 ár.

JÖRÐIN UNDIR FÓTUM OKKAR valin besta myndin á Tromsö hátíðinni

Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar eftir Yrsu Roca Fannberg var valin besta kvikmyndin á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tromsø í Noregi. Hátíðin fór fram á dögunum.

Lestin um JÖRÐINA UNDIR FÓTUM OKKAR: Frumleg heimildamyndagerð sem ætti ekki að láta neinn ósnortinn

Kolbeinn Rastrick fjallar um heimildamynd Yrsu Roca Fannberg, Jörðin undir fótum okkar, í Lestinni á Rás 1 og segir hana meðal annars takast á ljóðræðan hátt að miðla lífi þeirra sem dvelja á Grund og á sama tíma lífinu sem slíku sem er samspil gleði, fegurðar og harms.

Morgunblaðið um JÖRÐINA UNDIR FÓTUM OKKAR: Fegurð hins hversdagslega

Jóna Gréta Hilmarsdóttir skrifar um heimildamyndina Jörðin undir fótum okkar eftir Yrsu Roca Fannberg í Morgunblaðið og segir hana meðal annars ljóðræna og fallega kvikmynd sem fangi lífið á lokaspretti þess af hlýju og virðingu.

Hanna Björk Valsdóttir: „Það er tekið eftir þessari seiglu sem við þurfum að sýna“

„Það vita það allir á Norðurlöndunum að Ísland hefur ekki jafn mikið fjármagn í heimildarmyndagerð,“ segir Hanna Björk Valsdóttir í viðtali við Víðsjá á Rás 1. Hún hlaut á dögunum aðalverðlaun framleiðenda á Nordisk Panorama. 

JÖRÐIN UNDIR FÓTUM OKKAR verðlaunuð í S-Kóreu

Jörðin undir fótum okkar vann dómnefndarverðlaunin á DMZ International Documentary Film Festival, einni virtustu heimildamyndahátíð í Asíu. Yrsa Roca Fannberg, leikstjóri myndarinnar, tók við verðlaununum í Suður-Kóreu í gær.

[Stikla] JÖRÐIN UNDIR FÓTUM OKKAR heimsfrumsýnd á CPH:DOX

Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar eftir Yrsu Roca Fannberg verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni CPH:DOX í Kaupmannahöfn síðar í mánuðinum. Stikla myndarinnar er komin út.

Heimildamyndin JÖRÐIN UNDIR FÓTUM OKKAR fær styrk frá Eurimages

Í myndinni eru hversdagslegir atburðir, gleðilegir og sorglegir, fangaðir á filmu á meðan lífið heldur áfram í allri sinni fegurð hjá heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Grund.
spot_imgspot_img

NÝJUSTU FÆRSLUR