JÖRÐIN UNDIR FÓTUM OKKAR heimsfrumsýnd á CPH:DOX

Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar eftir Yrsu Roca Fannberg verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni CPH:DOX í Kaupmannahöfn í mars.

Í myndinni eru hversdagslegir atburðir, gleðilegir og sorglegir, fangaðir á filmu á meðan lífið heldur áfram í allri sinni fegurð hjá heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Grund.

Handrit skrifa Yrsa og Elín Agla Briem. Wojciech Staroń sér um stjórn kvikmyndatöku. Framleiðandi myndarinnar er Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri Films og meðframleiðandi er Małgorzata Staroń (Staron Films).

CPH:DOX er ein helsta heimildamyndahátíð heims. Jörðin undir fótum okkar er önnur heimildamynd Yrsu í fullri lengd. Hennar fyrsta, Síðasta haustið (2019), var sýnd á CPH:DOX 2020 eftir heimsfrumsýningu á hinni virtu kvikmyndahátíð í Karlovy Vary í Tékklandi sumarið áður.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR