Gísli Einarsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir fara með áhorfendur í rannsóknarleiðangur þar sem þau skoða hinar ýmsu mýtur og sturlaðar staðreyndir um mat. Matarsérfræðingar greina matarhefðir, tískur og strauma – allt frá súrmat til skordýrasnakks – og stjörnukokkar fá það verkefni að búa til gómsætar máltíðir úr vinsælu hráefni liðinna tíma.
Í fyrsta þættinum er spurt: Hvað borðuðu landnámsmenn? Fjallað er um mat á fyrstu öldum Íslandsbyggðar þegar réttar geymsluaðferðir á mætvælum skiptu sköpum til að lifa af. Þegar Sturlungar slógu upp veisum var vel veitt af áfengi – annað hefði verið ótækt. Fjallað er um mýtur um lambakjöt og stjörnukokkur fær að spreyta sig á hráefni landnámsmanna.
Konráð Pálmason er leikstjóri þáttanna sem eru alls sjö talsins, en framleiðandi þeirra er Erna Sóley Ásgrímsdóttir fyrir RÚV.