Í umsögn dómnefndar segir að myndin hafi hrifið þau með meistaralega nákvæmri leikstjórn, næmni og fínlegum léttleika sem og óvænt upplífgandi lýsingu leikstjórans á sorginni. Þessu hafi síðan verið örugglega komið til skila af ungum og fullkomlega samsettum leikarahóp.
Verðlaunaféð nemur um 5,1 milljón íslenskra króna (400.000 sænskum krónum). Samstarfsaðilar keppninnar eru Västra Götalandssvæðið og Gautaborg.
Þetta eru fjórtándu alþjóðlegu kvikmyndaverðlaun Ljósbrots.













