Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt er á Vísi:
Þar segir að líkt og komið hafi fram í kauphallartilkynningu Sýnar frá 31. október hafi öll fjölmiðlastarfsemi Sýnar verið sameinuð. Hið nýja svið kallist Miðlar og efnisveitur. Sviðið sé mikilvægur hlekkur í rekstri Sýnar en þar fer fram öll framleiðsla á dagskrárefni hvort sem er í sjónvarpi, útvarpi og hlaðvarpi.
Rekstur fréttastofu heyrir einnig undir sviðið en unnið er eftir skýrri ritstjórnarstefnu og heyrir ritstjóri frétta beint undir forstjóra. Í tilkynningunni segir að Kristjana hafi áratuga reynslu af fjölmiðlageiranum á Norðurlöndunum, þar sem hún hefur sinnt fjölbreyttum ábyrgðarstörfum.
Hún hefur gegnt lykilhlutverkum hjá fyrirtækjum á borð við Warner Bros., Discovery og Viaplay Group. Þar hefur hún m.a. sérhæft sig í stefnumótun, efniskaupum og markaðssetningu, auk stjórnun stafrænna umbreytingarverkefna. Hún hefur öðlast dýrmæta innsýn í starfsemi fjölmiðlafyrirtækja, leitt fjölþjóðleg verkefni og unnið náið með haghöfum á sviði fjölmiðlunar. Nú síðast hefur Kristjana veitt sjónvarpsþróun Sýnar forstöðu.
„Við erum afar ánægð að fá Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur til liðs við framkvæmdastjórn félagsins. Framkvæmdastjórnin er nú full mönnuð að teknu tilliti til breytinga á skipuriti Sýnar, sem tóku gildi 1. nóvember 2024,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar. „Kristjana hefur yfirgripsmikla alþjóðlega reynslu af fjölmiðlarekstri og stafrænni tækniþróun og mun styrkja yfirstjórn félagsins verulega. Við hlökkum til að vinna með Kristjönu að því að efla og þróa starfsemi fjölmiðlareksturs Sýnar og félagsins í heild enn frekar.“
Haft er eftir Kristjönu að það sé gríðarlega spennandi að fá að taka þátt í þeirri vegferð sem Sýn sé á. „Styrkur fjölmiðla Sýnar er til vitnis um þá hæfileika, sköpunargáfu og ástríðu sem miðlarnir búa við. Þetta er mjög sterkur grunnur að byggja á þegar við tökumst saman á við að móta framtíð fjölmiðla í síbreytilegu landslagi.“