spot_img

[Stikla] GUÐAVEIGAR Markelsbræðra kemur með jólin

Gamanmyndin Guðaveigar eftir þá Markelsbræður, Örn Marinó Arnarson og Þorkel S. Harðarson, verður frumsýnd 26. desember. Stiklan er komin út.

Guðaveigar fjallar um fjóra presta sem halda til Rioja á Spáni til að finna messuvín í betri gæðum en þekkst hefur á Íslandi hingað til. Þeir eru svo uppteknir við vinnu sína og smakkið að þeir missa af kraftaverkunum sem gerast allt í kringum þá.

Upptökur fóru fram á Spáni og Íslandi í maí og júní síðastliðnum.

Með helstu hlutverk fara Hilmir Snær Guðnason, Halldór Gylfason, Þröstur Leó Gunnarsson, Sverrir Þór Sverrisson, Vivian Ólafsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir.

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR