Þær hlutu Verðlaun Sólveigar Anspach

Birna Ketilsdóttir Scram og Nellie Carrier hlutu á dögunum Verðlaun Sólveigar Anspach fyrir stuttmyndir sínar, Allt um kring og Ditch.

Verðlaunin eru á vegum franska  sendiráðsins og Alliance Francaise en athöfnin og sýning stuttmyndanna sem kepptu fór fram á nýafstaðinni RIFF hátíð.

Stuttmyndakeppnin Verðlaun Sólveigar Anspach var sett á fót árið 2016 til að heiðra minningu Sólveigar og hvetja ungar konur til dáða í kvikmyndaleikstjórn. Verðlaun eru veitt konum fyrir fyrstu stuttmynd þeirra á frönsku eða íslensku, tungumálum Sólveigar.

Klapptré fjallaði um mynd Birnu hér (hefst á mín 09:34):

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR