Guðaveigar fjallar um hóp íslenskra presta sem leggja af stað í leiðangur til að finna hið fullkomna messuvín. Áætlað er að frumsýna kvikmyndina á næsta ári.
Með helstu hlutverk fara þau Vivian Ólafsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Halldór Gylfason, Sverrir Þór Sverrisson og Þröstur Leó Gunnarsson.
Picture Tree seldi nýverið réttinn að gamanmyndinni Fullt hús til Þýskalands, Austurríkis, Taívan og Ástralíu. Markelsbræður eru framleiðendur myndarinnar.