Heildaraðsókn næstum tvöfaldast milli ára. Heildaraðsókn á íslenskar kvikmyndir í bíó nam 146.577 gestum miðað við 77.662 gesti 2022. Þetta er um 87% aukning. Vel rúmur þriðjungur heildaraðsóknar (38,7%) var á eina mynd, Villibráð.
Heildaraðsókn á íslenskar kvikmyndir hefur ekki verið hærri síðan 2018.
Heildartekjur námu um 287,7 milljónum króna miðað við 127,6 milljónir króna árið 2022.
Villibráð er mest sótta bíómyndin með vel yfir 56 þúsund gesti. Hún er jafnframt í öðru sæti yfir mest sóttu kvikmyndir ársins. Leita verður allt aftur til ársins 2012 til að finna íslenska kvikmynd sem hlaut meiri aðsókn, en það var Svartur á leik.
Hlutfall íslenskra kvikmynda af heildaraðsókn er rúm 14,5%, sem er óvenju hátt hlutfall.
Meðalaðsókn á íslenskar bíómyndir 2023 er 18.322 gestir. Það er mun hærra hlutfall en undanfarin ár.
Hér að neðan má sjá listann yfir aðsókn og tekjur á íslenskar kvikmyndir 2023. Athugað að röðun á listann er eftir aðsókn, sem er ákvörðun Klapptrés.
SÆTI | TITILL | DREIFING | TEKJUR | AÐSÓKN |
1 | Villibráð | Sena | 114.971.434 kr | 56.236 |
2 | Kuldi | Sena | 61.256.065 kr | 29.700 |
3 | Napóleonsskjölin | Samfilm | 59.864.296 kr | 29.338 |
4 | Á ferð með mömmu | Sena | 22.236.740 kr | 12.091 |
5 | Northern Comfort | Sena | 8.089.783 kr | 5.448 |
6 | Volaða land | Sena | 8.005.411 kr | 4.402 |
7 | Bíó Paradís – Sérsýningar – ÍSLENSKT* | Bíó Paradís | 3.463.550 kr | 3.033 |
8 | Óráð | Sena | 2.684.124 kr. | 1.762 |
9 | Tilverur | Samfilm | 2.532.120 kr | 1.452 |
10 | Konungur fjallanna**** | Hekla Films | 2.240.690 kr | 1.291 |
11 | Jólamóðir** | Samfilm | 1.471.022 kr | 996 |
12 | Lói – þú flýgur aldrei einn*** | Sena | 864.972 kr | 793 |
13 | Sumarljós og svo kemur nóttin** | Sena | 61.490 kr | 35 |
SAMTALS | 287.741.697 kr | 146.577 | ||
MEÐALAÐSÓKN | 18.322 | |||
HEIMILD: FRÍSK | *Ýmsar sérsýningar | **Frumsýnd 2022, tölur eingöngu 2023 | ***Endursýnd, frumsýnd 2018 | ****Heimildamynd. |