FÁR fær heiðursviðurkenningu á Norrænum kvikmyndadögum í Lübeck

Fár eftir Gunni Martinsdóttur Schlüter, hlaut heiðursviðurkenningu í flokki stuttmynda á Norrænum kvikmyndadögum í Lübeck.

Fjöldi íslenskra kvikmyndaverka var sýndur á hátíðinni í ár, sem lauk með verðlaunaathöfn 4. nóvember. Auk stuttmyndar Gunnar var til að mynda Tilverur, í leikstjórn Ninnu Pálmadóttur, sýnd í keppnisflokki kvikmynda.

Þá var sjónvarpsþáttaröðin Heima er best, í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur, heimsfrumsýnd á hátíðinni. Uppselt var á fyrstu sýningu þáttanna og fengu þeir afar góðar viðtökur, segir á vef Kvikmyndamiðstöðvar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR