Ekkert lát er á vinsældum kvikmyndarinnar Villibráð sem er áfram í fyrsta sæti aðsóknarlistans.
8,055 gestir sáu myndina í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 24,194 eftir þriðju sýningarhelgi. Miðað við gengi myndarinnar hingað til má ætla að hún fari að lokum nálægt 40 þúsund gesta markinu.
Aðsókn á íslenskar myndir 16.-22. jan. 2023
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
3 | Villibráð | 8,055 (9,784) | 24,194 (16,139) |
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)