Abbababb! er í öðru sæti aðsóknarlistans eftir þriðju helgi.
1,940 gestir sáu myndina í vikunni, en myndin hefur nú alls fengið 8,306 gesti.
Svar við bréfi Helgu er í sjöunda sæti eftir fimmtu helgi. 810 sáu myndina í vikunni, en heildarfjöldi nemur nú 7,860 gestum.
Heimildamyndina Velkominn Árni sáu 201 gestur í vikunni, en alls hefur hún fengið 661 gest eftir aðra helgi. Myndin er í tíunda sæti.
Berdreymi hefur nú fengið 9,694 gesti eftir 24 vikur.
Aðsókn á íslenskar myndir 26. sept. til 2. okt. 2022
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
3 | Abbababb! | 1,940 (3,027) | 8,306 (6,366) |
5 | Svar við bréfi Helgu | 810 (1,224) | 7,860 (7,050) |
2 | Velkominn Árni | 201 (460) | 661 (460) |
24 | Berdreymi | 56 (21) | 9,694 (9,638) |