[Stikla] ALLRA SÍÐASTA VEIÐIFERÐIN frumsýnd 18. mars

Stikla kvikmyndarinnar Allra síðasta veiðiferðin eftir Örn Marinó Arnarson og Þorkel Harðarson er komin út. Myndin verður frumsýnd 18. mars.

Vinahópur fer í sinn árlega laxveiðitúr til að slaka á í sveitinni og hafa það gott. Nýliðarnir í hópnum reyna virkilega á þanþolið og túrinn fer hratt og örugglega í vaskinn út af nýjum og gömlum syndum.

Með helstu hlutverk fara Þorsteinn Bachmann, Sigurður Sigurjónsson, Jóhann Sigurðarson, Hilmir Snær Guðnason, Þröstur Leó Gunnarsson, Halldór Gylfason, Gunnar Helgason, Halldóra Geirharðsdóttir, Ylfa Marín Haraldsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR