Tyrkjaránið grunnur að nýrri alþjóðlegri leikinni þáttaröð

Sagafilm og LittleBig Productions hafa stofnað til samstarfs um þróun og framleiðslu á leikinni sjónvarpsþáttaröð sem ber vinnuheitið Salé. Þáttaröðin byggir á Tyrkjaráninu, sem átti sér stað árið 1627 þegar sjóræningjar á skipum frá Barbaríinu komu til Íslands, réðust á land, handtóku og seldu hundruð íslendinga í þrældóm í Norður Afríku.

Sagan segir af mægðum, Gunni og Grímu sem verða aðskila á þrælamarkaði í Marokkó og þurfa að finna ólíkar leiðir til að lifa af í framandi menningarheimi. Þáttaröðin fjallar um valdabaráttu, frelsissviptingu, heimilis- og ástvinamissi í tengslum við lítt þekkta mansalssögu Evrópu. Þetta er einnig spennandi saga og sterk frásögn um ást, lífsvilja, hefnd og eflingu sterkrar vonar, segir í tilkynningu.

„Það er virkilega gaman að opinbera að Sagafilm og LittleBig Productions hafa stofnað til samstarfs kringum þetta spennandi verkefni um Tyrkjaránið og afleiðingar þess. Þetta er saga sem að langflestir Íslendingar þekkja og þáttaröðin hefur mjög sterka alþjóðlega skírskotun, sem ætti vonandi að einfalda fjármögnun á svona stóru verkefni,” segir Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm.

Verkefnið hefur verið í þróun í nokkur ár og er komið vel áleiðis en það eru þau Anna G. Magnúsdóttir, Anders Granström og Herbert Gehr sem eiga hugmyndina að þáttaröðinni sem nú fer í frekari þróunarvinnu á næstu mánuðum þar sem fleiri öflugir handritshöfundar koma inn í teymið.

„Markmið okkar er að segja áhugaverða og grípandi sögu um örlög þess fólks sem var með valdi frá heimilum sínum og ástvinum og gefa mynd af þeim ókunna heimi sem það skyndilega þurfti að fóta sig í. Sögulegir atburðir eru hafðir sterklega til hliðsjónar en dramatískir þættir frásögunnar hafðir í fyrirrúmi. Það að fá Sagafilm sem samstarfsaðila í þessu verkefni gerir okkur kleift að efla þróunina og koma henni á næsta stig. Það er mikilvægt að varpa ljósi á þessa mikið til gleymdu atburði og ekki síst mikilvægt fyrir Íslendinga að fá sögur um samlanda sína og aðstæður þeirra á þessum ótrúlega kafla í Íslandssögunni,“ segir Anna G. Magnúsdóttir, framleiðandi hjá LittleBig Productions.

„Með þessa öflugu sögu þá teljum við að þetta verkefni eigi heima ekki bara hér á Íslandi heldur einnig fyrir utan landssteina og munum við vinna með okkar kröftugu samstarfsaðilum að selja þáttaröðina til sýninga um allan heim. Við erum strax farin að finna fyrir miklum áhuga á verkefninu,“ segir Kjartan Þór Þórðarson, framleiðandi hjá Sagafilm Nordic.

Sagafilm hefur framleitt mikið af leiknu sjónvarpsefni síðustu ár en nýjasta verkefnið er Systrabönd sem sýnt var á Sjónvarpi Símans Premium við góðar undirtektir og síðar í haust mun önnur þáttaröð af Stellu Blómkvist fara í loftið á sömu sjónvarpsstöð. Kvikmyndin Wolka sem framleidd er af Sagafilm verður frumsýnd á RIFF í byrjun október og fer í kjölfarið í almennar sýningar hér á landi.

LittleBig Productions er sænskt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni. Íslenska kvikmyndin Alma sem nýlega var tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs er samframleidd af Little Big Productions sem einnig framleiddi kvikmyndina Vesalings elskendur sem var tilnefnd til þriggja Eddu verðlauna árið 2020 og kvikmyndina Hemma sem einnig er margfalt verðlaunuð og var tilnefnd till fleiri Eddu verðlauna 2015.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR