spot_img

Greining | SÍÐASTA VEIÐIFERÐIN mest sótta íslenska myndin 2020, aðsókn eykst milli ára þrátt fyrir faraldurinn

Aðsókn á íslenskar kvikmyndir í bíó 2020 jókst verulega miðað við 2019, sem reyndar var slappt ár aðsóknarlega. Aukningin er um 15%. Síðasta veiðiferðin er mest sótta bíómynd ársins.

Samtals voru 8 nýjar íslenskar bíómyndir og heimildamyndir sýndar í kvikmyndahúsum 2020, miðað við 16 árið 2019.

Þetta er mun minna en tíðkast hefur lengi og má skýra með heimsfaraldrinum sem dró verulega úr möguleikum á samkomuhaldi á árinu.

Fjórar nýjar bíómyndir litu dagsins ljós (tíu myndir 2019), en ein bíómynd frá fyrra ári var einnig í sýningum. Auk þess voru nokkrar eldri bíómyndir endurútgefnar. Frumsýndar heimildamyndir voru 4 talsins, miðað við 6 árið 2019.

Þrátt fyrir fækkun mynda er aðsókn á íslenskar myndir 2020 mun meiri en 2019. Hún nam 69.586 gestum miðað við 53.835 gesti 2019. Þetta er um 15% aukning milli ára. Lunginn af aðsókninni er á tvær myndir, Síðustu veiðiferðina og Ömmu Hófí.

Aukningin í aðsókn varð þrátt fyrir heimsfaraldur kórónaveiru, tímabundna lokun kvikmyndahúsa og dræma aðsókn restina af árinu. Taka verður fram að 2019 var óvenju slappt ár í aðsókn á íslenskar myndir.

Heildarinnkoma nam um 115 milljónum króna miðað við 76 milljónir króna árið 2019.

Síðasta veiðiferðin er mest sótta bíómyndin en vinsælasta heimildamynd ársins er Þriðji póllinn.

Hlutfall íslenskra kvikmynda af heildartekjum er 17%, sem er mun hærra en nokkru sinni áður. Þetta skýrist meðal annars af mjög takmörkuðu framboði á bandarískum  kvikmyndum á árinu.

Tekið skal sérstaklega fram að vegna faraldursins og takmarkana á sýningahaldi ákvað FRÍSK að gefa ekki út árlegt yfirlit yfir almenna aðsókn í kvikmyndahús líkt og venjulega. Þó hefur verið gefið út að samdráttur í aðsókn nam um 60% miðað við árið á undan.

Hér að neðan má sjá listann yfir aðsókn og tekjur á íslenskar kvikmyndir 2020. Athugað að röðun á listann er eftir aðsókn.

HEITIDREIFINGTEKJURAÐSÓKN
Síðasta veiðiferðinMyndform61.777.80835.306
Amma HófíMyndform35.880.67522.428
GullregnSena13.142.1348.509
Þriðji póllinn**Sena931.355803
Skoppa og Skrítla (2008) - (2020 endurútgáfa)Samfilm555.579668
MentorSena765.585622
Stella í orlofi endurútgáfa (2020)Sena722.180612
Agnes (endurútgáfa 2020)Samfilm469.977259
Á skjön - verk og dagar Magnúsar Pálssonar**/*Bíó Paradís171.450106
Á móti straumnum**Bíó Paradís130.98082
Víti i Vestmannaeyjum (2018) (endurútgáfa 2020)Samfilm86.22872
Húsmæðraskólinn**Bíó Paradís80.69856
Ég er einfaldur maður, ég heit Gleb**Bíó Paradís67.200 45
Bergmál*Sena32.45118
114.814.30069.586
HEIMILD: FRÍSK og BÍÓ PARADÍS | *Frumsýnd 2019, tölur 2020 | **Heimildamyndir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR