Eftir fimmtándu sýningarhelgi (þar af níu helgar í sýningum) er Síðasta veiðiferðin enn á toppi aðsóknarlistans þar sem hún hefur verið frá frumsýningu í byrjun mars. Nú hafa yfir 24 þúsund gestir séð myndina.
2,221 sáu myndina í vikunni miðað við 1,821 gest vikuna áður. Nemur heildarfjöldi gesta nú 24,244 manns.
ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.
Aðsókn á íslenskar myndir 8.-14. júní 2020
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
15 | Síðasta veiðiferðin | 2,221 | 24,244 (22,023) |