Steinþór Birgisson höfundur heimildamyndarinnar vinsælu Jón og séra Jón (2011), hefur opnað fyrir ókeypis aðgang að myndinni og er hægt að nálgast hana hér.
Jón og séra Jón var sýnd í Bíó Paradís og víðar um land 2011 við mikla aðsókn og var valin besta myndin á Skjaldborgarhátíðinni 2011.
Myndin segir af séra Jóni Ísleifssyni presti á Árnesi á Ströndum. Séra Jón lifir lífinu á sinn eigin sérstæða máta og af honum eru margar sögur, bæði sannar og ósannar. Í kjölfar langvinnra deilna innan safnaðarins er svo komið að mikill meirihluti sóknarbarna hefur skrifað undir vantraust á séra Jón og lýst því yfir að þau vilji ekki að hann starfi lengur sem sóknarprestur í Árnesprestakalli. Er séra Jón óhæfur prestur? Eða eru aðrir kraftar að verki? Hvað sem því líður er séra Jón maður sem er staddur á miklum tímamótum.
Skoða má myndina hér að neðan. Undir er svo útgáfa með enskum texta.