Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað verkefnishóp til að vinna að gerð stefnu í kvikmyndamálum sem gilda á frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2030. Verður það í fyrsta sinn sem stjórnvöld móta heildstæða stefnu og aðgerðaáætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvikmynda í menningu þjóðarinnar, menntun í kvikmyndagerð á öllum skólastigum, miðlun íslensks kvikmyndaefnis og stuðning við framleiðslu kvikmynda.
Mælst er til þess að verkefnishópurinn ljúki störfum og skili tillögum sínum fyrir 31. júní 2019.
Verkefnishópurinn er þannig skipaður:
- Dagur Kári Pétursson formaður Samtaka kvikmyndaleikstjóra, formaður,
- Grímar Jónsson framleiðandi, varaformaður.
- Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður,
- Áslaug María Friðriksdóttir formaður Kvikmyndaráðs,
- Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri,
- Einar Karl Birgisson framkvæmdastjóri,
- Þorgeir Ólafsson sérfræðingur á skrifstofu menningarmála,
- Baldur Sigmundsson sérfræðingur í atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti,
- Kristinn Þórðarson sérfræðingur frá Samtökum iðnaðarins.