Kona fer í stríð Benedikts Erlingssonar, vann til áhorfendaverðlaunanna á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðini í Tromsø í Noregi. Hátíðinni lauk 20. janúar síðastliðinn.
Nýverið var Davíð Þór Jónsson tilnefndur til norrænu kvikmyndatónskáldaverðlaunanna fyrir tónlist sína við kvikmyndina Kona fer í stríð. Verðlaunin kallast Hörpuverðlaunin og verða afhent í Berlín 12. febrúar.
Sjá nánar hér: Kona fer í stríð vinnur til verðlauna í Tromsø