Birgit Guðjónsdóttir tökumaður hlýtur heiðursverðlaun þýsku myndatökuverðlaunanna – Deutscher Kamerapreis – sem Vestur-þýska útvarpið WDR veitir árlega. RÚV greinir frá.
Í frétt RÚV segir meðal annars:
Verðlaunin eru veitt tökumönnum sem þykja skara fram úr á sínu sviði, bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Birgit Guðjónsdóttir er fædd í Reykjavík 1962. Hún er af íslenskum og austurrískum uppruna og hefur starfað við kvikmyndagerð í Þýskalandi um langt skeið. Hún hefur unnið jöfnum höndum að gerð kvikmynda, heimildamynda og auglýsinga.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að Birgit takist að myndgera alvarleg málefni á tilfinningaríkan hátt, sem knýi áhorfendur til að hugsa.
Sjá nánar hér: Birgit Guðjónsdóttir fær þýsk heiðursverðlaun