Wift konur létu ekki storminn stoppa sig í gærkvöldi og héldu á aðalfund Wift á Hallveigarstöðum, þar sem kosin var ný stjórn samtakanna.
Í nýrri stjórn Wift sitja Eva Sigurðardóttir (framleiðandi og leikstjóri), Helga Einarsdóttir (sjónvarps- og kvikmyndagerðarkona), Tinna Hrafnsdóttir (leikstjóri, framleiðandi og leikkona) og Dögg Mósesdóttir ( leikstjóri og handritshöfundur) en nýr formaður er Helga Rakel Rafnsdóttir (leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi).
Frá árinu 2011 hafa leikstjórarnir Kristín Jóhannesdóttir, Marsibil Sæmundardóttir, Silja Hauksdóttir og Vera Sölvadóttir setið í stjórn Wift ásamt Dögg Mósesdóttur sem hefur gengt formannsembættinu.
Sjá nánar hér: Ný stjórn Wift – wift