Vetrarbræður Hlyns Pálmasonar hlaut þrenn verðlaun á Thessaloniki International Film Festival í Grikklandi sem lauk um helgina. Myndin hlaut einnig verðlaun í Sevilla á Spáni og La Roche-sur-Yon í Frakklandi fyrir skemmstu. Alls eru alþjóðleg verðlaun myndarinnar nú 11 talsins.
Í thessaloniki hlaut leikstjórinn sérstaka viðurkenningu dómnefndar sem og hljóðhönnuður myndarinnar, Lars Halvorsen. Þá hlaut myndin einnig sérstaka viðurkenningu dómnefndar FIPRESCI, alþjóðasamtaka gagnrýnenda.
Á Festival de Sevilla á Spáni hlaut Maria von Hausswolff verðlaun fyrir bestu myndatöku og á Festival International du Film de La Roche-sur-Yon í Frakklandi hlaut myndin sérstaka viðurkenningu alþjóðlegrar dómnefndar.