Snjór og Salóme eftir Sigurð Anton Friðþjófson verður frumsýnd í Senubíóunum 7. apríl næstkomandi. Stiklu myndarinnar má sjá hér.
Snjór og Salóme er um unga konu, Salóme, sem býr með fyrrverandi kærasta sínum og besta vini, Hrafni. Babb kemur í bátinn þegar Hrafn barnar aðra stelpu, sem í kjölfarið flytur inn til þeirra.
Með aðalhlutverk fara Anna Hafþórsdóttir, Telma Huld Jóhannesdóttir, Vigfús Þormar Gunnarsson, Guðmundur Snorri Sigurðarson, Ævar Már Ágústsson og Júlí Heiðar Halldórsson. Í öðrum hlutverkum eru m.a. Guðjón Karlsson, Gunnar Helgason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Framleiðendur eru Magnús Thoroddsen Ívarsson og Telma Huld Jóhannesdóttir. Leikstjóri og handritshöfundur er Sigurður Anton Friðþjófsson, en þetta sama teymi gerði einnig kvikmyndina Webcam sem sýnd var 2015.