Hera Hilmarsdóttir mun fara með aðal kvenhlutverkið í kvikmyndinni Mortal Engines sem Peter Jackson framleiðir.
Variety skýrir frá þessu.
Jackson, Fran Walsh, and Philippa Boyens – sem öll komu að handritasmíði Hringadróttinsseríunnar – munu skrifa handritið sem byggt er á skáldsögu Philip Reeve. Fyrirhugað er að gera fleiri myndir um þennan sagnaheim.
Jackson og hans teymi munu framleiða myndina, Christian Rivers leikstýrir. MRC og Universal fjármagna, Universal mun jafnframt dreifa á heimsvísu.
Þræðinum er svo lýst:
The book is set thousands of years in the future. Earth’s cities now roam the globe on huge wheels, devouring each other in a struggle over diminishing resources. On one of these massive Traction Cities, Tom Natsworthy has an unexpected encounter with a mysterious young woman from the Outlands, who will change the course of his life forever.
Áætlað er að tökur hefjist á Nýja Sjálandi í vor og að myndin verði frumsýnd jólin 2018.
Þetta er fyrsta hlutverk Heru í stórri Hollywood mynd. Hún hefur nýlokið við að leika í The Ottoman Lieutenant ásamt Josh Hartnett og An Ordinary Man með Ben Kingsley. Báðar myndirnar eru væntanlegar.
Sjá nánar hér: Hera Hilmar Lands Female Lead in Peter Jackson’s ‘Mortal Engines’ | Variety