![](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2016/09/Ei%C3%B0urinn-baltasar-brennandi-b%C3%ADll.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)
Eiðurinn Baltasars Kormáks var í gærkvöldi valin besta myndin á Noir in Film kvikmyndahátíðinni í Milano á Ítalíu.
Hátíðin leggur áherslu á spennu- og glæpamyndir, en þetta er í 26. sinn sem hún fer fram.
Í umsögn dómnefndar segir:
For the sublime skill with which the director, who also acted in and produced the film, was able to portray the drama of a man forced to confront his own contradictions, in a highly personal style that shows Kormákur’s mastery of the visual and dramaturgical aspects of the film medium.
Ingvar E. Sigurðsson hlaut verðlaun á þessari hátíð sem besti leikarinn í aðalhlutverki 2007, fyrir Mýrina.
Eiðurinn er aðsóknarmesta og tekjuhæsta mynd ársins á Íslandi 2016.