Einn heiðursgesta RIFF 2016 er indverska leikstýran Deepa Mehta. Morgunblaðið ræddi við hana um nýjustu mynd hennar, Anatomy of Violence, sem sýnd verður á hátíðinni.
Í viðtalinu, sem Júlía Margrét Alexandersdóttir tekur, kemur meðal annars eftirfarandi fram:
„Sem manneskja og sem femínisti er það mér mjög mikilvægt að það sé hægt að rjúfa þennan vítahring sem heimurinn býr við – nauðganir sem eiga sér stað um allan heim, allan ársins hring. Ég held að til að stöðva þetta verðum við að reyna að skoða og skilja hvaðan grimmd af þessu tagi kemur,“ segir indversk-kanadíska kvikmyndagerðarkonan Deepa Mehta sem er heiðursgestur RIFF í ár.
Mehta skoðar í nýjustu mynd sinni, Anatomy of Violence, einn alræmdasta glæp síðari tíma, hópnauðgun og morð á 23 ára gamalli háskólastúlku í Nýju-Delí á Indlandi árið 2012 þegar sex menn réðust á Jyoti Singh Pandey í strætisvagni þar í borg með þeim afleiðingum að hún lést af sárum sínum tveimur dögum eftir árásina. Deepa sem dvelur helming ársins á Indlandi og helming ársins í Kanada var stödd í Nýju-Delí þegar þetta gerðist og eins og fjöldi borgarbúa gerðu fór hún út á göturnar til að mótmæla þennan morgun sem fréttirnar af voðaverkinu bárust.
Og ennfremur:
„Ég er aldrei hrifin af því að vera með einhvern áróður eða skilaboð í kvikmyndum, þá gæti ég allt eins orðið stjórnmálamaður, en ég yrði samt sátt ef þessi kvikmynd yrði kveikja að umræðu, samtali um það hvernig megi rjúfa þennan vítahring sem við erum komin í, og skilning á því hvernig samfélagið sjálft er líka ábyrgt. Samfélagið er ábyrgt fyrir því að skapa menn sem framkvæma slíka glæpi,“ segir Mehta og bætir við að spurning hennar sé: „Hvað er það sem býr til þessi skrímsli?“
Mehta segist telja að Anatomy of Violence sé jafnvel hennar síðasta mynd en kvikmyndagerðarkona er 66 ára gömul. „Ég er ekki hundrað prósent viss en ég held það nú samt. Mér líður eins og allt sem ég hef viljað segja í öllum myndum mínum skili sér fullkomlega í þessari. Sem er athyglisvert í sjálfu sér því þetta er mynd sem ég gerði á allt annan hátt en ég hef gert nokkra kvikmynd. Þessi mynd er ekki falleg, hún er ber og hrá en ég vildi frekar hafa hana eins og „heimavídeó“ en listræna kvikmynd og í henni er því engin tónlist. Allar tilraunir sem ég hef nokkurn tíman viljað prófa í þessari listgrein gerði ég þarna.“
Sjá nánar hér: „Hvað er það sem býr til þessi skrímsli?“ – mbl.is